Robert Mueller svarar umfjöllun bandaríska vefmiðilsins Buzzfeed News

Embætti sérstaks saksóknara bandaríska dómsmálaráðuneytisins, sem Robert Mueller gegnir, hefur svarað umfjöllun bandaríska vefmiðilsins Buzzfeed News um meintar lygar Michaels Cohen. Buzzfeed hafði það eftir tveimur ónafngreindum heimildarmönnum sínum að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafi skipað fyrrum lögmanni sínum, Michael Cohen, að ljúga að þingnefnd um aðkomu Trump að viðskiptum í Rússlandi á meðan að á kosningabaráttu hans stóð. Í yf­ir­lýs­ing embættisins er ekki tekið fram hvað í frétt Buzz­feed sé ekki sannleikanum samkvæmt, annað en það að lýs­ing Buzz­feed sé ekki í alla staði rétt. Afar sjaldgæft er að sérstakur saksóknari sendi frá sér yfirlýsingar af þessum toga.

0
00:38

Vinsælt í flokknum Fréttir