Skuldabréfaútboði Wow Air er lokið
Skuldabréfaútboði WOW Air lauk í dag og nemur stærð skuldabréfaflokksins 60 milljónum evra, eða um 7,7 milljörðum króna. Bæði innlendir og erlendir fjárfestar tóku þátt í útboðinu en til stendur að skrá félagið á hlutabréfamarkað á næstu tólf til átján mánuðum.