Ferðamaður lést við fall fram af kletti
Banaslys varð í hlíðum Kirkjufells í Grundarfirði í morgun þegar erlendur ferðamaður, sem hafði orðið viðskila við félaga sinn, féll fram af klettum. Fallið var hátt og var hann látinn þegar að honum var komið.