Samgönguráðherra segir gagnrýni ekki eiga rétt á sér
Samgönguráðherra segir gagnrýni tveggja bæjarstjóra um þá ákvörðun að opna fyrir útboð á Suðurlandsvegi áður en tvöföldun Reykjanesbrautar er lokið ekki eiga rétt á sér. Gjaldtaka vegtolla gæti hafist undir lok næsta árs gangi áætlanir eftir en með þeim væri hægt að flýta uppbyggingu vegakerfisins.