Ekki öll umhverfisverndarsamtök eru hryðjuverkasamtök
Íslandi stendur ógn af samtökum sem fremja hryðjuverk í nafni náttúruverndar, segir í nýrri skýrslu um hvalveiðar Íslendinga. Hún sé þó ekki það mikil að hætta beri hvalveiðum. Aðalhöfundur skýrslunnar segir ekki rétt að í henni sé öllum umhverfisverndarsamtökum líkt við hryðjuverkasamtök.