Bókmenntaverðlaun kvenna

Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna, voru afhent við hátíðlega athöfn í Höfða í dag. Bókin Ástin, Texas eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur vann verðlaunin í flokki fagurbókmennta. Kristín Helga Gunnarsdóttir, vann verðlaunin í flokki barna- og unglingabókmennta, fyrir bók sína Fíasól gefst aldrei upp og Þjáningarfrelsið eftir Auði Jónsdóttur, Báru Huld Beck og Steinunni Stefánsdóttur vann verðlaunin í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis.

5
00:36

Vinsælt í flokknum Fréttir