Réðu niðurlögum árásarmannana

Búið er að ráða niðurlögum árásarmannanna sem létu til skarar skríða á hóteli í Naíróbí, höfuðborg Kenía í gær. (LUM) Minnst fjórtán eru látnir eftir árásina en Íslömsku hryðjuverkasamtökin al-Shabaab hafa lýst yfir ábyrgð á ódæðinu. Árásarmennirnir sprengdu upp bíla við hótelið og hófu loks skothríð. Í kjölfarið hófst margra klukkustunda umsátur lögreglu um hótelið sem lauk snemma í morgun með dauða árásarmannana.

5
00:29

Vinsælt í flokknum Fréttir