Hvalveiðar hafa ekki slæm áhrif á íslenskt efnahagslíf
Hvalveiðar hafa ekki slæm áhrif á íslenskt efnahagslíf og ekki er að finna marktækar vísbendingar um að þær dragi úr ferðum útlendinga hingað. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Hagfræðistofnunar um þjóðhagsleg áhrif hvalveiða. Höfundar skýrslunnar telja að setja þurfi lög eða reglur um hvalaskoðun.