Sterkustu skákmenn landsins komu saman
Sterkustu skákmenn landsins komu saman á Íslandsmótinu í hraðskák sem fór fram í Landsbankanum við Austurstræti í dag. Þetta er fimmtánda árið í röð sem efnt er til mótsins sem nefnt er Friðriksmótið til heiðurs Friðriki Ólafssyni, fyrsta stórmeistara Íslendinga.