Fótbolti

Jürgen Klopp vill ekki mæta Borussia Dortmund

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpoolm með Philippe Coutinho eftir leikinn á Old Trafford í gær.
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpoolm með Philippe Coutinho eftir leikinn á Old Trafford í gær. Vísir/Getty
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool er ekki spenntur fyrir því að mæta sínum gömlu lærisveinum í Borussia Dortmund þegar dregið verður í átta liða úrslit Evrópudeildarinnar í dag.

Liverpool sló Manchester United út úr sextán liða úrslitunum á Old Trafford í gærkvöldi og getur mætt liðum frá fimm löndum þegar dregið verður í höfuðstöðvum UEFA í hádeginu í dag.

Eitt af þessum liðum sem gætu komið upp úr pottinum er Borussia Dortmund en Jürgen Klopp stýrði Dortmund með frábærum árangri frá 2008 til 2015.

„Vil ég mæta Dortmund? Afhverju ætti ég að vilja mæta besta liðinu í keppninni í næstu umferð," spurði Jürgen Klopp blaðamann Sky Sports á móti.

„Ég er ekki svo vitlaus. Ef við lendum á móti þeim þá munum við reyna að vinna. Ég er líka nokkuð viss um það að það eru engir auðveldir leikir eftir í keppninni. Það er heldur ekki eins mikilvægt hverjum við mætum eins og það er hvernig við undirbúum okkur," sagði Klopp.

Borussia Dortmund sló enska liðið Tottenham út úr sextán liða úrslitunum með sannfærandi hætti, vann báða leikina og samanlag 5-1.

Liverpool hefur þegar mætt einu þýsku liði í útsláttarkeppninni en Klopp og lærisveinar hans slógu Augsburg út úr 32 liða úrslitunum.

Dortmund vann báða leiki sína á móti Porto í 32 liða úrslitunum og samanlagt 3-0. Það er því skiljanlegt að Klopp vilji sleppa við liðið sem hefur unnið fjóra síðustu Evrópudeildarleiki sína á móti öflugum liðum eins Porto og Tottenham með markatölunni 8-1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×