Fótbolti

Juventus tyllti sér á toppinn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ítalíumeistarar Juventus báru sigurorð af Manchester City, 1-0, á heimavelli sínum í D-riðli Meistaradeildar Evrópu í kvöld.

Með sigrinum komst Juventus upp fyrir City á topp riðilsins en bæði lið eru örugg áfram í 16-liða úrslitin.

Króatinn Mario Mandzukic skoraði eina mark leiksins á 18. mínútu eftir undirbúning Paul Pogba og Alex Sandro.

Markið úr leiknum má sjá í spilaranum hér að ofan.

Í hinum leik riðilsins vann Borussia Mönchengladbach öruggan 4-2 sigur á Sevilla. Lars Stindl skoraði tvö mörk fyrir Gladbach og þeir Fabian Johnson og Raffael sitt markið hvor.

Gladbach sem er í 3. sæti riðilsins og í fínni stöðu til að tryggja sér sæti í Evrópudeildinni eftir áramót.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×