Fótbolti

Juventus skrefi nær titlinum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Dybala skoraði tvö mörk í kvöld.
Dybala skoraði tvö mörk í kvöld. Vísir/Getty
Juventus færðist enn nær því að vinna sinn fimmta meistaratitil í röð á Ítalíu en liðið hafði í kvöld betur gegn Lazio, 3-0.

Mario Mandzukic kom Juventus yfir á 39. mínútu en Paulo Dybala skoraði hin tvö mörkin, það fyrra úr vítaspyrnu. Í stöðunni 1-0 missti Lazio mann af velli með þegar Patric fékk sína síðari áminningu í leiknum.

Juventus er á toppnum með 82 stig og níu stiga forystu á Napoli þegar fjórar umferðir eru eftir af tímabilinu. Liðið gæti því tryggt sér meistaratitilinn strax um helgina.

Inter tapaði dýrmætum stigum í kvöld er liðið tapaði fyrir Genoa, 1-0. Liðið er sex stigum á eftir Roma sem er í þriðja og síðasta Meistaradeildarsætinu.

Úrslit kvöldsins:

Sassuolo - Sampdoria 0-0

Chievo - Frosinone 5-1

Empoli - Verona 1-0

Genoa - Inter 1-0

Juventus - Lazio 3-0

Palermo - Atalanta 2-2

Roma - Torino 3-2

Udinese - Fiorentina 2-1




Fleiri fréttir

Sjá meira


×