Fótbolti

Juventus með níu fingur á titlinum eftir sigur á Fiorentina

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Pogba í leiknum í kvöld.
Pogba í leiknum í kvöld. Vísir/getty
Juventus þarf aðeins eitt stig til viðbótar til þess að tryggja sér ítalska meistaratitilinn fimmta árið í röð eftir 2-1 sigur á Fiorentina í lokaleik dagsins í ítalska boltanum.

Eftir slakt gengi framan af hefur Juventus einfaldlega verið óstöðvandi í deildinni undanfarna mánuði og unnið 25 af síðustu 26 leikjum liðsins.

Króatíski framherjinn Mario Mandzukic kom Juventus yfir undir lok fyrri hálfleiks en Nikola Kalinic virtist ætla að bjarga stigi fyrir Fiorentina þegar hann jafnaði tíu mínútum fyrir lok leiksins.

Ítölsku meistararnir voru Juventus fljótir að svara því Juventus brunaði upp í sókn og náði forskotinu á ný einni mínútu síðar. Stýrði Alvaro Morata þá boltanum í netið af stuttu færi eftir skot Patrice Evra.

Fiorentina fékk svo sannarlega færin til að jafna eftir það en stuttu fyrir leikslok krækti Kalinic í afar ódýra vítaspyrnu.

Kalinic steig sjálfur á punktinn en lét Gianluigi Buffon í marki Juventus verja frá sér. Kalinic fékk síðan annað færi þegar fyrirgjöf barst á fjærstöng en skalli hans af meters færi fór í slánna.

Stuttu síðar  flautaði dómari leiksins  leikinn af og fögnuðu leikmenn Juventus af krafti enda ljóst að liðið væri komið með níu fingur á titilinn.

Eina von Napoli sem situr í öðru sæti er að liðið nái að vinna síðustu fjóra leikina og að Juventus tapi leikjum sínum gegn Carpi, Verona og Sampdoria.

Úrslit dagsins:

Frosinone 0-2 Palermo

Atalanta 1-0 Chievo

Bologna 2-0 Genoa

Sampdoria 2-1 Lazio

Torino 1-3 Sassuolo

Fiorentina 1-2 Juventus




Fleiri fréttir

Sjá meira


×