Fótbolti

Juventus heldur í við Napólí

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Costa var bjargvætturinn i kvöld
Costa var bjargvætturinn i kvöld vísir/getty
Juventus bar sigurorð af Genoa á heimavelli í ítölsku Seria A deildinni í fótbolta í kvöld.

Douglas Costa kom heimamönnum yfir strax á 16. mínútu leiksins. Það reyndist verða eina mark leiksins og 1-0 sigur Juventus raunin.

Sigurinn var nokkuð öruggur hjá Juventus þrátt fyrir að vera aðeins einu marki yfir og því myndi leikurinn gjörbreytast ef andstæðingarnir næðu að setja mark.

Varnarmenn Juventus þurftu þó ekki mikið að hafa fyrir laununum sínum í dag, því Genoa átti aðeins tvær marktilraunir og hvorug þeirra fór á ramman.

Juventus átti hins vegar 5 skot á ramman, 15 í heildina.

Juventus er einu stigi á eftir Napólí á toppi deildarinnar þegar 21 umferð er lokið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×