Fótbolti

Juventus heiðrar Buffon með 16 tíma samantekt | Myndband

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Goðsögnin Gianlugi Buffon.
Goðsögnin Gianlugi Buffon. Vísir/Getty
Ítölsku meistararnir í Juventus tóku saman skemmtilega samantekt á meti sem Gianlugi Buffon, markvörður liðsins, setti um daginn þegar hann fékk ekki á sig mark í 973. mínútur.

Buffon fékk loksins á sig mark í borgarslagnum í Tóríno um síðustu helgi en þetta var aðeins annað markið sem hann fékk á sig á þessu ári og það fyrsta í rúmlega tvo mánuði.

Samantektin sýnir allar markvörslur hans á þessum tveimur mánuðum en samantektin er alls 16 klukkustundir og 17 mínútur eða 973. mínútur. Jafn langt og metið sem Buffon setti.

Fyrir áhugasama má sjá myndbandið hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×