Fótbolti

Juventus hafði betur gegn AC Milan | Sjáðu mörkin

Stefán Árni Pálsson skrifar
Paul Pogba gerði sigurmark Juve í kvöld.
Paul Pogba gerði sigurmark Juve í kvöld. vísir/getty
Fjórir leikir fóru fram í ítölsku seríu A-deildinni í knattspyrnu í dag og ber þar helst að nefna frábæran sigur Juventus, 2-1, á AC Milan í stórleik helgarinnar í ítalska boltanum.

Alex kom AC Milan yfir eftir rúmlega korters leik en um tíu mínútum síðar náði Mario Mandzukic að jafna metin fyrir Juve.

Staðan var 1-1 í hálfleik en Paul Pogba skoraði sigurmarkið á 65. mínútu leiksins og tryggði gestunum þrjú mikilvæg stig.

Juventus er á toppi deildarinnar með 76 stig, níu stigum á undan Napoli sem er í öðru sæti. Napoli á aftur á móti einn leik til góða.

Hér að neðan má sjá önnur úrslit dagsins:

Frosinone 0 - 1 Inter

Chievo Verona 1 - 0 Carpi

Sassuolo 0 - 1 Genoa

Hér að neðan má sjá mörkin í leik AC Milan og Juventus



Fleiri fréttir

Sjá meira


×