Enski boltinn

Juventus ber víurnar í Oscar

Oscar í landsleiknum gegn Frökkum.
Oscar í landsleiknum gegn Frökkum. vísir/getty
Forráðamenn Juventus eru farnir að huga að liðsstyrk fyrir næsta vetur og þeir eru nú með Brasilíumanninn Oscar í sigtinu.

Áhugi Juve á þessum skemmtilega leikmanni Chelsea er ekki nýr af nálinni. Þeir sendu útsendara til París síðasta fimmtudag til þess að sjá hann í leik Brasilíu og Frakklands. Þar skoraði Oscar í 3-1 sigri Brassanna.

Leikmaðurinn er aftur á móti hæstánægður í herbúðum Chelsea og skrifaði í fyrra undir samning til ársins 2019.

Ef Chelsea myndi selja hann þá færi leikmaðurinn aldrei á undir 25 milljónir punda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×