Fótbolti

Juve vann stórslaginn á Ítalíu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Juan Cuadrado gerði eina mark leiksins.
Juan Cuadrado gerði eina mark leiksins. vísir/getty
Juventus vann stórleikinn gegn Inter Milan í ítölsku seríu A-deildinni í kvöld en leikurinn fór 1-0 og fór fram á heimavelli Juve.

Eina mark leiksins gerði Juan Cuadrado rétt fyrir lok fyrri hálfleiks og voru ekki skoruð fleiri mörk í leiknum.

Ivan Perisic fékk beint rautt spjald í liði Inter á 90. mínútu leiksins.

Juventus enn í efsta sæti deildarinnar með 54 stig og fátt virðist koma í veg fyrir enn einn Ítalíumeistaratitil þeirra í röð. Inter er í fimmta sæti deildarinnar með 42 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×