Lífið

Justin Timberlake sprengdi þakið af Globen og Íslendingar misstu sig á Twitter

Birgir Olgeirsson skrifar
Justin Timberlake.
Justin Timberlake. Vísir/Getty
Justin Timberlake fór langt með að sprengja þakið af Globen í Stokkhólmi þar sem hann kom fram í hléi á Eurovision-keppninni í kvöld. Það var ljóst að þar var mikill fagmaður á ferð sem vanur er að koma fram. Og Íslendingar á Twitter veittu því athygli hve mikil fagmennska var þar að baki og sögðu þessa framkomu Timberlake setja ný afstaðna Eurovision-keppni í samhengi.

Aðrir bentu á að þetta væri hreint ekki sanngjarnt fyrir keppendurna að vera bornir saman við Timberlake. Þá voru sumir sem vildu kjósa Timberlake og aðrir hreinlega að tilnefna hann sem fulltrúa Íslendinga.

Hægt er að fylgjast með umræðunni á #12stig hér fyrir neðan:

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×