Lífið

Justin Timberlake kyssti bumbuna

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Mynd/Instagram
Justin Timberlake birti í gær mynd á Instagram-síðu sinni þar sem hann þakkar fyrir afmæliskveðjurnar en söngvarinn varð 34 ára í gær.

Á myndinni sést Timberlake kyssa óléttubumbu eiginkonu sinnar, Jessicu Biel, og skrifar undir myndina að á þessu ári muni hann fá bestu gjöf í heimi, barn.

Timberlake og Biel hafa verið saman síðan árið 2007 og giftu þau sig 2012, og er þetta fyrsta barn hjónakornanna.

JT, eins og hann er gjarnan kallaður, er sannur Íslandsvinur eftir að hann hélt eftirminnilega tónleika í Kórnum í Kópavogi í ágúst á seinasta ári. 


Tengdar fréttir

Justin Timberlake algjörlega heillaður af íslenskum áhorfendum

Samkvæmt heimildum Vísis sagði söngvarinn við samstarfsfólk sitt að íslenskir áhorfendur væru einhverjir þeir bestu sem hann hefur séð. Eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi var rífandi stemning á tónleikum gærkvöldsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×