Golf

Justin Rose vann í Skotlandi eftir gallalausan lokahring

Justin Rose er líklegur til afreka á Opna breska meistaramótinu.
Justin Rose er líklegur til afreka á Opna breska meistaramótinu. AP/Getty
Englendingurinn Justin Rose sigraði á Opna skoska meistaramótinu sem fram fór á Royal Aberdeen vellinum en hann lék hringina fjóra á samtals undir 16 pari. Rose leiddi mótið fyrir lokahringinn í dag þar sem hann gerði engin mistök, fékk ekki einn einasta skolla og kom inn á 65 höggum eða sex undir pari.

Hinn sænski Kristoffer Broeberg nældi sér í annað sætið en hann endaði mótið tveimur höggum á eftir Rose, á 14 höggum undir pari.

Margir þekktir kylfingar tóku þátt í mótinu um helgina sem alla jafna leika ekki á Evrópumótaröðinni.

Þar má helst nefna Phil Mickelson sem sigraði á þessu móti í fyrra en hann er tíður gestur á Opna skoska enda er mótið talið góður undirbúningur undir Opna breska meistaramótið sem hefst í næstu viku.

Mickelson átti ágæta titilvörn og endaði að lokum jafn í 11. sæti á átta höggum undir pari. Rickie Fowler var einnig með en hann endaði á níu höggum undir pari, jafn í áttunda sæti.

Rory McIloy átti sveiflukennda viku en hann endaði jafn í 14. sæti á sjö höggum undir pari en hann hefði verið í toppbaráttunni um helgina ef ekki hefði verið fyrir hræðilegan annan hring á föstudaginn þar sem hann lék á 78 höggum eða sjö yfir pari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×