Golf

Justin Rose minnir á sig fyrir lokahringinn á Firestone

Justin Rose sýndi allar sínar bestu hliðar á þriðja hring.
Justin Rose sýndi allar sínar bestu hliðar á þriðja hring. Getty
Justin Rose og Jim Furyk mynda lokahollið á lokahringnum á Bridgestone Invitational en eftir 54 holur eru þeir á níu höggum undir pari.

Rose lék gallalaust golf á þriðja hring og kom inn á 63 höggum eða sjö undir pari. Hann og Furyk eiga tvö högg á næsta mann sem er Írinn Shane Lowry en hann er á sjö höggum undir pari.

Þá eru mörg stór nöfn sem deila fjórða sætinu á fimm undir pari sem gætu blandað sér í baráttu um sigurinn með góðum lokahring.

Þar má helst nefna Ian Poulter, Bubba Watson og Henrik Stenson en Jordan Spieth sem hefði getað farið í efsta sæti heimslistans með sigri um helgina siglir lygnan sjó neðar á skortöflunni á sléttu pari.

Lokahringurinn verður eflaust mjög spennandi en hann hefst á Golfstöðinni klukkan 16:00 í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×