Glamour

Justin Bieber gerir allt vitlaust með loðkápunni sinni

Ritstjórn skrifar
Rosaleg loðkápa hjá kappanum.
Rosaleg loðkápa hjá kappanum. Mynd/skjáskot
Stíllinn hans Justin Bieber er alltaf að breytast en á dögunum ákvað hann að fara út að borða í risastórri loðkápu, rifnum gallabuxum, rússkins skóm og með gleraugu. Þetta dress er að gera allt vitlaust, ekki aðeins vegna þess að við erum að sjá hlið af Justin sem við höfum aldrei séð áður, heldur einnig vegna loðkápunnar sem tekur eins mikla athygli og hægt er. Svo er líka ekki loðkápu veður í Los Angeles um þessar mundir.

Dýraverndunarsamtökin PETA eru allt annað en sátt með fataval söngvarans. Þau sögðu að þessi hellisbúatíska sé algjör lágpunktur fyrir Bieber. Aðferðin sem notuð er til að drepa dýrin sem notuð eru í jakkann eru allt annað en mannúðleg. 

Dressið í heild sinni.Mynd/Skjáskot





×