Lífið

Justin Bieber og Selena Gomez orðin mjög náin og ljósmyndari náði mynd af kossi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Nýjasta stjörnuparið?
Nýjasta stjörnuparið?
Tónlistarfólkið Selena Gomez og Justin Bieber voru einu sinni par en þau hættu saman árið 2014.

Nú greina miðlar vestanhafs frá því að þau séu að byrja saman aftur og sjást þau oft saman úti meðal almennings.

Miðillinn Viral Thread greinir frá því að Bieber og Gomez muni bráðlega koma fram opinberlega sem par.

Justin Bieber tók þátt í íshokkíleik í Los Angeles á dögunum og náðist þá mynd af Gomez og Bieber að kyssast. 

Innilegur koss.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×