Tónlist

Júníus Meyvant sendir frá sér sitt fyrsta tónlistarmyndband

Stefán Árni Pálsson skrifar
Júníus Meyvant er mjög vinsæll hér á landi.
Júníus Meyvant er mjög vinsæll hér á landi. Mynd/sigríður Unnur lúðvíksdóttir
Í dag kemur formlega út tónlistarmyndband við lagið Neon Experience af væntanlegri breiðskífu Júníusar Meyvants, myndbandið er jafnframt fyrsta myndbandið sem Júníus Meyvant gefur út.

Leikstjóri myndbandsins var Hannes Þór Arason en það var allt tekið upp á 8mm filmuvél í Vestmannaeyjum.

Saga myndbandsins er um hversdagslegt líf í Vestmannaeyjum, þar sem Unnar (Júníus Meyvant) ólst upp, og það vill svo til að það er pabbahelgi. Ungi strákurinn í myndbandinu er einmitt sonur Unnars og saxófónleikarinn er faðir hans.

Júníus Meyvant lauk nýverið við upptökur á sinni fyrstu hljómplötu sem hefur verið í vinnslu um nokkurt skeið. Platan ber heitið „Floating Harmonies“ og kemur hún út 8. Júlí nk. Platan kemur út um allan heim en verður fáanleg í eiginlegum eintökum í Evrópu fyrst um sinn. Record Records gefur út.

Í september fer Júníus Meyvant í tónleikaferð um Evrópu ásamt hljómsveit sinni og verður spilað á eftirfarandi stöðum:

Sep 2 Berlin, DE Privatclub

Sep 3 Gdansk, PO Soundrive Fest

Sep 4 Dresden, DE Sound Of Bronkow Festival

Sep 5 Prague, CZ La Loca

Sep 6 Vienna, AT Chelsea

Sep 7 Munich, DE Ampere

Sep 9 Hamburg, DE Nochtspeicher

Sep 10 Copenhagen, DK Jazzhouse

Sep 12 Aarhus, DK Radar

Sep 14 Groningen, NL Vera

Sep 15 Amsterdam, NL Bitterzoet

Sep 16 London, UK Bush Hall

Sep 17 Bristol, UK Louisiana

Sep 18 Glasgow, UK Broadcast

Sep 19 Manchester, UK Gullivers

Sep 21 Paris, FR La Boule Noir

Sep 22 Brussels, BE Live Europe

Sep 23 Zurich, CH Bogen F






Fleiri fréttir

Sjá meira


×