Lífið

Júlíspá Siggu Kling - Vog: Hættu þessu tuði

Sigga Kling skrifar
Elsku hjartans Vogin mín.  Ekki hafa samviskubit yfir neinu, ekkert bit er sárara einmitt en það. Þú pælir svo mikið í að þú eigir nú að vera búin með þetta, og þú þurfir að klára hitt og vera til staðar þarna, að þú getir fengið svo mikið samviskubit af þessu.

Þú ert að fylla á tankinn þinn fyrir haustið. Þú ert að fylla hugann, svo leyfðu þér bara að vera. Slakaðu á og farðu með flæðinu, segðu já við hinu óvænta. Eins og ef einhver spyr þig: „Eigum við að skreppa til Dalvíkur?“ segðu þá já. Hátt og snjallt! Segðu bara já við einhverju sem þú bjóst ekki við að þú myndir gera, það er svo margt sem mun breytast með þessu eina jái.



Þú munt aldrei gefast upp, þú átt níu líf, það er mjög mikil einbeiting í kringum þig. En mikið óskaplega þolirðu illa þegar einhver hefur svo mikil áhrif á þig að líf þitt hreinlega stöðvast. Það er nefnilega svo mikið kapp í þér. Þú þarft bara að muna að elska það aðeins að vera kærulaus. Hugleiðsla skiptir svo miklu máli fyrir þig. Bara að kyrra hugann smá og hugsa helst ekki neitt. Þú hefur svo mikla hæfileika að elska aðra skilyrðislaust og sendir svo góða strauma út frá þér. Það er einmitt þess vegna sem fólk elskar þig. Þér finnst líka æði oft eins og að sjálfsagi sé mikilvægur. Þú getur þar af leiðandi verið sítuðandi út í sjálfa þig. Ef þú stæðir eins sterkt með þér og þú stendur með vinum þínum, væri þetta svo miklu auðveldara.



Þó að þú hafir upplifað sársauka í fortíðinni, þá er sá sársauki að kenna þér að skilja aðra svo miklu betur. Þetta á eftir að hjálpa þér að hjálpa samferðamönnum í kringum þig. Þú ert jú svo mikill snillingur að kæta aðra. Og morgundagurinn, elsku Vogin mín, er búinn til svo þú þurfir ekki að gera allt í dag.



Lífið er yndislegt.

Frægir í Voginni: Kári Árnason landsliðsmaður, Glúmur Baldvinsson stjórnmálafræðingur, Hjalti flugþjónn, Ingi í Sign, Jón Axel Ólafsson athafnamaður, Matt Damon leikari, Íris Berg, fatahönnuðurinn minn, Mary Poppins, Steingrímur Sævarr Ólafsson fjölmiðlaráðgjafi, Svanhildur Hólm Valsdóttir, aðstoðarmaður ráðherra og sjónvarpskona, Hanna Birna Kristjánsdóttir þingkona.

Tengdar fréttir

Júlíspá Siggu Kling - Ljónið: Þú verður að nenna ástinni

Elsku Ljónið mitt. Aldrei hefur nokkurn tíma verið sagt að það sé sérlega auðvelt að vera Ljón, en ég er alveg viss um að þótt þú fengir tilboð um að skipta um merki, þá myndir þú ekki gera það. Þið Ljónin eruð náttúrulega öll konungborin.

Júlíspá Siggu Kling - Fiskur: Hamingjan bankar á dyrnar

Elsku fallegi seiðandi Fiskurinn minn. Hversu dásamlegt á þetta sumar eftir að verða? Það eina sem getur að einhverju leyti truflað þig eða snúið þig niður er annað fólk sem þú ert að stressa þig á, en hefur enga ástæðu til.

Júlíspá Siggu Kling - Tvíburinn: Þitt besta sumar í lengri tíma

Elsku Tvíburinn minn. Ekki hefur verið lognmollunni fyrir að fara í kringum þig. Fólk reynir hvað það getur að hafa stjórn á þér en þú átt bara ekki að leyfa því það. Það getur enginn breytt líðan þinni nema þú gefir samþykki. Passaðu þig á þessu.

Júlíspá Siggu Kling - Vatnsberinn: Slúður er rödd andskotans

Hjartans Vatnsberi. Þú ert að fara inn í merkilegan tíma. Þú ert að fara inn í tíma heiðarleika. Þú ert að fara inn í tíma þar sem að sannleikurinn skiptir ofsalega miklu máli, þú átt eftir að heyra hver sannleikurinn er í hlutum sem þig óraði ekki fyrir.

Júlíspá Siggu Kling komin á Vísi!

Stjörnuspár Sigríðar Klingenberg spámiðils njóta gríðarlega vinsælda undanfarin ár. Mánaðarlega spáir hún fyrir lesendum Vísis og Fréttablaðsins, í formi texta og myndbands, en spár hennar fyrir júnímánuð má sjá hér fyrir neðan.

Júlíspá Siggu Kling - Krabbinn: Greddan ræður ríkjum

Elsku Krabbinn minn. Það er svo rosalega mikill Venus í kringum þig í sumar. Þú elskar og verður elskaður. Þú verður svo spenntur fyrir svo dæmalaust mörgu að þú veist varla hvert þú átt að stefna. Það er samt allt í lagi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×