Lífið

Júlíspá Siggu Kling - Vatnsberi: Leiðtoginn sem lætur ekkert stoppa sig

Sigga Kling skrifar
Hjartans viskumikli vatnsberi. Þú ert svo mikið að átta þig á öllu mögulegu núna að það er unun að horfa á. Þú ert til dæmis að átta þig á að það ert þú sem þarft að gera hlutina og að þú getir ekki beðið eftir að aðrir geri þá. Þú ert viljasterkur leiðtogi og þú skalt bara storma áfram eins og enginn sé morgundagurinn.

Þú átt aldrei eftir að lifa lífi sem verður of hefðbundið. Þú þarft til dæmis alltaf að hafa heimilið aðeins öðruvísi. Það er eins og þú sért alltaf að finna eitthvað upp. Þú ert svo óútreiknanlegur og skemmtilegur og átt að nýta þér það til fulls þessa mánuði. Þótt það hafi verið pínu mistök í gangi þá gera mistökin mann merkilegri en ella. Það á miklu meira eftir að gerast í lífi þínu núna en þú bjóst við. Tekjurnar verða ekki eins miklar og þú gerðir ráð fyrir en peningar koma annars staðar frá.

Þetta verður með skemmtilegri sumrum sem þú hefur siglt í gegnum, þrátt fyrir veðrið. Þú munt ekki láta það hafa áhrif á þig. Það er það góða við vatnsberann. Hann hefur hæfileika til að útiloka leiðindi og erfiðleika. Þú ert svo mikil fyrirmynd og þú þarft að vita það. Það er svo mikil frásagnarorka í þér og þú ert svo góður sögumaður en gefur þér líka alltaf tíma til að hlusta á aðra. Þú hefur mikla hæfileika þar.

Það er eins og það komi til þín eins og elding hvernig þú eigir að leysa vandamál þín. Og þú getur gengið teinréttur í burtu. Þú ferð í ferðalag sem mun breyta mörgu hjá þér og þú verður svo sáttur. Mundu að hlakka til.

Mottó: Ég er frjáls.



Frægir í vatnsberanum: Ragnheiður Guðfinna, Pacas hans Begga, Geir Sveinsson handknattleiksþjálfari, Halla himintungl, Clark Gable leikari, Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir borgarfulltrúi, Yoko Ono, Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra, Katrín Jakobsdóttir þingkona og fyrrum ráðherra, Hilmir Snær Guðnason leikari.

 


Tengdar fréttir

Júlíspá Siggu Kling - Ljón: Margt á döfinni hjá þér

Elsku einstaka ljón. Það væri líklega ekkert að gerast ef þú dveldir ekki á móður jörð. Að sjálfsögðu eru tilfinningarnar búnar að vera þandar eins og flottasta fiðlan í sinfóníunni. Þú hefur verið lítið í þér en einnig stórhuga og haft tröllatrú á öllu.

Júlíspá Siggu Kling - Fiskur: Ekki láta streituna yfirbuga þig

Elsku meðvirki fiskur. Ég hef stúderað þig lengi og meðvirkasta fólk í heimi er í þínu merki. Þú ert alltof góður, gefur alltof mikið og svo getur þú orðið innanpirraður. Það er allt í lagi að láta fjúka í sig, vera leiður og fara stundum í fýlu. Þú getur ekki alltaf verið uppistandarinn í partýinu.

Júlíspá Siggu Kling - Tvíburi: Slepptu örygginu um stund

Elsku fallegi tvíburi. Það virðist margt hafa verið að gerast hjá þér. Þú vilt breytingar í líf þitt og það eru mörg tákn búin að vera uppi síðustu tvo mánuði sem sýna þér að það gætu mjög góðir hlutir verið á leið inn í líf þitt.

Júlíspá Siggu Kling - Vog: Með friðinn að leiðarljósi

Varkára en samt öfluga vogin mín. Þú skalt vera þakklát fyrir alla þá heppni sem er að koma til þín og leysir upp leiðindi, ef þér finnst þau hafa verið hjá þér. Þú munt hægt en örugglega sjá að þú ert að gera rétt. Þú átt eftir að gera mjög gott samkomulag við einhvern náinn þér og þér á eftir að líða miklu betur með það.

Júlíspá Siggu Kling - Bogmaður: Nýttu þér heppnina þína

Besti, besti bogmaður. Þú hefur svo sterkan kjarna og þú veist alltaf hvað þú ætlar að gera. Þú þarft að gera allt svo vel að maður öfundar þig stundum. Happdrætti Háskóla Íslands sagði að bogmaðurinn og vogin væru heppnustu merkin, miðað við þá sem hafa fengið þar vinninga. Þessu trúi ég. Þú átt að nýta þér að það er yfir þér sérstök heppni.

Júlíspá Siggu Kling - Sporðdreki: Vanilla gerir þér gott

Elsku fagri sporðdrekinn minn. Þú ert gæddur svo góðri eftirtekt að það virðist ekkert fram hjá þér fara. Þú hefur svo mikinn áhuga á fólki og það er eins og þú vitir hvað er að fara að gerast hjá sumum. Þú þarft að efla þennan kraft hjá þér og muna að fyrsta hugsunin er sú rétta.

Júlíspá Siggu Kling - Meyjan: Tímabil sameiningar

Elsku þrautgóða meyjan mín. Þetta er tímabil sameiningar. Þú munt ákveða að gifta þig eða ert jafnvel nýbúin að því. Það byrja ný sambönd hjá mörgum meyjunum og þú ert sko tilbúin að ganga inn í ljósið, en þú þarft bara að draga frá gardínurnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×