Lífið

Júlíspá Siggu Kling - Tvíburi: Slepptu örygginu um stund

Sigga Kling skrifar
Elsku fallegi tvíburi. Það virðist margt hafa verið að gerast hjá þér. Þú vilt breytingar í líf þitt og það eru mörg tákn búin að vera uppi síðustu tvo mánuði sem sýna þér að það gætu mjög góðir hlutir verið á leið inn í líf þitt. Hættu að vera svona óákveðinn. Það er bara vogin sem á að vera svona óákveðin. Taktu ákvörðun og fylgdu henni. Það er verið að tala við þig. Fólk á eftir að vilja fylgja þér þótt þú farir eitthvað. Þú ert að uppgötva svo mikla visku núna og að læra svo mikið á lífið, að í kortinu þínu er eins og þú sért að rísa upp. Þú finnur hvaða tilgang þú hefur, það er svo mikilvægt.

Ekki láta hugsanirnar skelfa þig, elsku skemmtilegi tvíburinn minn. Þú átt það nefnilega til að ímynda þér að þú sért í verri málum en þú ert. Þú ert eitthvað svo listrænn og skapandi í öllum hugsunum. Eins langar þig til að fara út um allt en á sama tíma býr í þér svo mikill öryggisfíkill. Slepptu örygginu að hluta, þú þarft að fljúga. Þú verður svo feginn ef þú gerir hjá þér breytingar núna og treystir því að þú munir lenda á réttum stað. Ekki pæla í hvað gerist í haust, haustið hefur sínar pælingar.

Þú átt eftir að græða á þessum gjörðum þínum og lífið grátt á eftir að breytast. Ég veit ekki hvort þú ert tilbúinn fyrir ástina, þú verður að finna það sjálfur. Það er dálítill efi í sambandi við það í kortunum þínum, en hinir sem eru í sambandi eiga bara að halda áfram. Til hamingju með þetta skemmtilega sumar, hjartað mitt.

Mottó: Sagan verður mér góð, það er ég sem skrifa hana.



Frægir tvíburar: Örn Árnason leikari, Óli Geir Jónsson plötusnúður, Bjarni töframaður, Össur Skarphéðinsson húmoristi, Johnny Depp leikari, Páll Magnússon fjölmiðlamaður.

 


Tengdar fréttir

Júlíspá Siggu Kling - Ljón: Margt á döfinni hjá þér

Elsku einstaka ljón. Það væri líklega ekkert að gerast ef þú dveldir ekki á móður jörð. Að sjálfsögðu eru tilfinningarnar búnar að vera þandar eins og flottasta fiðlan í sinfóníunni. Þú hefur verið lítið í þér en einnig stórhuga og haft tröllatrú á öllu.

Júlíspá Siggu Kling - Fiskur: Ekki láta streituna yfirbuga þig

Elsku meðvirki fiskur. Ég hef stúderað þig lengi og meðvirkasta fólk í heimi er í þínu merki. Þú ert alltof góður, gefur alltof mikið og svo getur þú orðið innanpirraður. Það er allt í lagi að láta fjúka í sig, vera leiður og fara stundum í fýlu. Þú getur ekki alltaf verið uppistandarinn í partýinu.

Júlíspá Siggu Kling - Vog: Með friðinn að leiðarljósi

Varkára en samt öfluga vogin mín. Þú skalt vera þakklát fyrir alla þá heppni sem er að koma til þín og leysir upp leiðindi, ef þér finnst þau hafa verið hjá þér. Þú munt hægt en örugglega sjá að þú ert að gera rétt. Þú átt eftir að gera mjög gott samkomulag við einhvern náinn þér og þér á eftir að líða miklu betur með það.

Júlíspá Siggu Kling - Bogmaður: Nýttu þér heppnina þína

Besti, besti bogmaður. Þú hefur svo sterkan kjarna og þú veist alltaf hvað þú ætlar að gera. Þú þarft að gera allt svo vel að maður öfundar þig stundum. Happdrætti Háskóla Íslands sagði að bogmaðurinn og vogin væru heppnustu merkin, miðað við þá sem hafa fengið þar vinninga. Þessu trúi ég. Þú átt að nýta þér að það er yfir þér sérstök heppni.

Júlíspá Siggu Kling - Sporðdreki: Vanilla gerir þér gott

Elsku fagri sporðdrekinn minn. Þú ert gæddur svo góðri eftirtekt að það virðist ekkert fram hjá þér fara. Þú hefur svo mikinn áhuga á fólki og það er eins og þú vitir hvað er að fara að gerast hjá sumum. Þú þarft að efla þennan kraft hjá þér og muna að fyrsta hugsunin er sú rétta.

Júlíspá Siggu Kling - Meyjan: Tímabil sameiningar

Elsku þrautgóða meyjan mín. Þetta er tímabil sameiningar. Þú munt ákveða að gifta þig eða ert jafnvel nýbúin að því. Það byrja ný sambönd hjá mörgum meyjunum og þú ert sko tilbúin að ganga inn í ljósið, en þú þarft bara að draga frá gardínurnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×