Lífið

Júlíspá Siggu Kling - Steingeit: Þetta reddast

Sigga Kling skrifar
Elsku sterka Steingeit.  Þú hefur svo mikla skoðun á því að allir eigi að vera jafnir og þú þolir alls ekki óréttlæti.

Yfirleitt líður því fólki miklu verr sem er að beita aðra órétti heldur en þeim sem verða fyrir óréttlætinu. Ég hef tekið eftir því að þeir sem voru hrekkjusvínin þegar þeir voru ungir, enda yfirleitt þannig að ekkert verður úr þeim þegar þeir svo vaxa úr grasi.

Þú hefur svo mikla samkennd með öðrum og vilt að allt gangi svo vel í kringum þig, svo láttu ekki þann sem er leiðinlegur hafa áhrif á þig. Það er bara ein dauðasynd til og það er að vera leiðinlegur. Þú mátt alveg freistast til þess að leyfa þér að vera svolítið löt, biðja um hjálp og vera bara einlæg ef það er eitthvað sem þú getur ekki eða þig vantar, láta fólk vita, og þá er eins og kraftaverk gerist. Og það er það sem þú þarft á að halda. Þig bráðvantar dásamlegt kraftaverk.

Þegar líða tekur á sumarið muntu baða þig í geislum velgengninnar, og þá getur þú sagt við þig: „Ég vissi að það væri heilmikið í mig spunnið.“ Þú þarft ekki að hafa neinar áhyggjur af því að einhver sé að dæma þig útaf þessu og hinu, það er bara hégómi.

Það virðast einhver veikindi vera hrjá manneskju sem er nálægt þér, þetta geta verið líkamleg eða andleg veikindi. Þessi manneskja þarf á þér að halda og að þú sért til staðar og þarf að fá þín dásamlegu ráð. Þú getur verið svo rosalega hlý, og þegar þú huggar aðra, þá verður þú miklu sterkari í öllu sem er að áreita þig.

Fyrir þá sem eru á lausu, þá sýnir ástin á sér margar hliðar. Eitthvað merkilegt er í kortunum í lok júlí til byrjunar ágústs. Vertu tilbúin, því þú átt það svo sannarlega skilið. Erfið ást fölnar og ný ást kviknar. Þetta getur líka verið í sambandi við vini, því að útkoman er að ástin sigrar allt.

Þú hefur það magnaða hlutverk í lífinu að koma miklu til leiðar. Þú átt að nota krafta þína til að hafa áhrif á fólk í kringum þig með jákvæðum og fallegum orðum. Mjög óvænt persóna í kringum þig mun hjálpa þér með vandamál þín og það er svo sannarlega hægt að segja að það verði vel hugsað um þig. „Þetta reddast“ er mottóið þitt, og það er svo sannarlega algjörlega hárrétt.


Lífið er yndislegt.

Frægar Steingeitur: Guðjón Pétur Lýðsson markakóngur, Svava Johansen í Sautján, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, dr. Kristín Ólafsdóttir, Jón Gnarr, Elvis Presley, Gunnar Þórðarson, Tómas Guðbjartsson læknahetja, Lovísa Tómas, Dorrit Moussaieff forsetafrú, Þuríður Blær Jóhannsdóttir, leikkona og Reykjavíkurdóttir, Jesús og Simmi á Fabrikkunni.


Tengdar fréttir

Júlíspá Siggu Kling - Ljónið: Þú verður að nenna ástinni

Elsku Ljónið mitt. Aldrei hefur nokkurn tíma verið sagt að það sé sérlega auðvelt að vera Ljón, en ég er alveg viss um að þótt þú fengir tilboð um að skipta um merki, þá myndir þú ekki gera það. Þið Ljónin eruð náttúrulega öll konungborin.

Júlíspá Siggu Kling - Fiskur: Hamingjan bankar á dyrnar

Elsku fallegi seiðandi Fiskurinn minn. Hversu dásamlegt á þetta sumar eftir að verða? Það eina sem getur að einhverju leyti truflað þig eða snúið þig niður er annað fólk sem þú ert að stressa þig á, en hefur enga ástæðu til.

Júlíspá Siggu Kling - Tvíburinn: Þitt besta sumar í lengri tíma

Elsku Tvíburinn minn. Ekki hefur verið lognmollunni fyrir að fara í kringum þig. Fólk reynir hvað það getur að hafa stjórn á þér en þú átt bara ekki að leyfa því það. Það getur enginn breytt líðan þinni nema þú gefir samþykki. Passaðu þig á þessu.

Júlíspá Siggu Kling - Vatnsberinn: Slúður er rödd andskotans

Hjartans Vatnsberi. Þú ert að fara inn í merkilegan tíma. Þú ert að fara inn í tíma heiðarleika. Þú ert að fara inn í tíma þar sem að sannleikurinn skiptir ofsalega miklu máli, þú átt eftir að heyra hver sannleikurinn er í hlutum sem þig óraði ekki fyrir.

Júlíspá Siggu Kling komin á Vísi!

Stjörnuspár Sigríðar Klingenberg spámiðils njóta gríðarlega vinsælda undanfarin ár. Mánaðarlega spáir hún fyrir lesendum Vísis og Fréttablaðsins, í formi texta og myndbands, en spár hennar fyrir júnímánuð má sjá hér fyrir neðan.

Júlíspá Siggu Kling - Krabbinn: Greddan ræður ríkjum

Elsku Krabbinn minn. Það er svo rosalega mikill Venus í kringum þig í sumar. Þú elskar og verður elskaður. Þú verður svo spenntur fyrir svo dæmalaust mörgu að þú veist varla hvert þú átt að stefna. Það er samt allt í lagi.

Júlíspá Siggu Kling - Vog: Hættu þessu tuði

Elsku hjartans Vogin mín. Ekki hafa samviskubit yfir neinu, ekkert bit er sárara einmitt en það. Þú pælir svo mikið í að þú eigir nú að vera búin með þetta, og þú þurfir að klára hitt og vera til staðar þarna, að þú getir fengið svo mikið samviskubit af þessu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×