Lífið

Júlíspá Siggu Kling - Sporðdreki: Vanilla gerir þér gott

Sigga Kling skrifar
Elsku fagri sporðdrekinn minn. Þú ert gæddur svo góðri eftirtekt að það virðist ekkert fram hjá þér fara. Þú hefur svo mikinn áhuga á fólki og það er eins og þú vitir hvað er að fara að gerast hjá sumum. Þú þarft að efla þennan kraft hjá þér og muna að fyrsta hugsunin er sú rétta.

Þú hefur svo mikið fegurðarskyn og þér finnst gaman að sanka að þér einhverju fallegu. Þú ert eins og hrafninn. Það væri gott núna að breyta inni á heimili þínu, pakka niður, gera hlutina einfalda til að byggja upp sterkari orku. Þig vantar orku fyrir næstu skref svo þú skalt búa hana til. Vanilla hefur til að mynda góð áhrif á þig og gefur þér jafnvægi.

Ég sé að það er eins og þú sért að búa þig undir að fara í víking. Þú ert að íhuga einhver plön og í guðanna bænum – þú skalt þora!

Ef þú ert, elsku sporðdreki, á því tímabili þar sem ekkert hefur verið að gerast í lengri tíma þá þarftu að hrista rimlana. Almættið er tilbúið að hjálpa þér og þú þarft bara að þora. Það er ekkert fegurra en hugrakkur sporðdreki sem ræðst á krókódílinn, þó að hann sé þúsundfalt stærri. Þegar líða tekur á skaltu sækja um stöðuna sem þú býst ekki við að fá. Það er nefnilega að eflast hjá þér sjálfstraustið og ef þú lítur í spegil þá sérðu að þú hefur kraftinn til að gera allt.

Þú átt að umfaðma spennuna sem er í þér, hún heldur þér á lífi og gerir allt svo skemmtilegt. En í ástamálunum áttu aftur á móti ekki að umfaðma spennu. Þeir sporðdrekar sem eru á lausu ættu að skoða manneskju sem styrkir þá og er hægt að treysta, það er nóg komið af hinu! Þú átt eftir að finna sanna gleði og gleðin er í hinu smáa, elskan mín. Alls ekki fara inn í sambönd sem eru byggð á vitleysu og blekkingu. Þú hefur ekki tíma til þess.

Mottó: Mátturinn býr í núinu og morgundagurinn leysist.



Frægir sporðdrekar:
Dísa í World Class, Helga Braga Jónsdóttir leikkona, Björk Guðmundsdóttir söngkona, Scarlett Johansson leikkona, Whoopie Goldberg leikkona.

 


Tengdar fréttir

Júlíspá Siggu Kling - Ljón: Margt á döfinni hjá þér

Elsku einstaka ljón. Það væri líklega ekkert að gerast ef þú dveldir ekki á móður jörð. Að sjálfsögðu eru tilfinningarnar búnar að vera þandar eins og flottasta fiðlan í sinfóníunni. Þú hefur verið lítið í þér en einnig stórhuga og haft tröllatrú á öllu.

Júlíspá Siggu Kling - Fiskur: Ekki láta streituna yfirbuga þig

Elsku meðvirki fiskur. Ég hef stúderað þig lengi og meðvirkasta fólk í heimi er í þínu merki. Þú ert alltof góður, gefur alltof mikið og svo getur þú orðið innanpirraður. Það er allt í lagi að láta fjúka í sig, vera leiður og fara stundum í fýlu. Þú getur ekki alltaf verið uppistandarinn í partýinu.

Júlíspá Siggu Kling - Tvíburi: Slepptu örygginu um stund

Elsku fallegi tvíburi. Það virðist margt hafa verið að gerast hjá þér. Þú vilt breytingar í líf þitt og það eru mörg tákn búin að vera uppi síðustu tvo mánuði sem sýna þér að það gætu mjög góðir hlutir verið á leið inn í líf þitt.

Júlíspá Siggu Kling - Vog: Með friðinn að leiðarljósi

Varkára en samt öfluga vogin mín. Þú skalt vera þakklát fyrir alla þá heppni sem er að koma til þín og leysir upp leiðindi, ef þér finnst þau hafa verið hjá þér. Þú munt hægt en örugglega sjá að þú ert að gera rétt. Þú átt eftir að gera mjög gott samkomulag við einhvern náinn þér og þér á eftir að líða miklu betur með það.

Júlíspá Siggu Kling - Bogmaður: Nýttu þér heppnina þína

Besti, besti bogmaður. Þú hefur svo sterkan kjarna og þú veist alltaf hvað þú ætlar að gera. Þú þarft að gera allt svo vel að maður öfundar þig stundum. Happdrætti Háskóla Íslands sagði að bogmaðurinn og vogin væru heppnustu merkin, miðað við þá sem hafa fengið þar vinninga. Þessu trúi ég. Þú átt að nýta þér að það er yfir þér sérstök heppni.

Júlíspá Siggu Kling - Meyjan: Tímabil sameiningar

Elsku þrautgóða meyjan mín. Þetta er tímabil sameiningar. Þú munt ákveða að gifta þig eða ert jafnvel nýbúin að því. Það byrja ný sambönd hjá mörgum meyjunum og þú ert sko tilbúin að ganga inn í ljósið, en þú þarft bara að draga frá gardínurnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×