Lífið

Júlíspá Siggu Kling - Ljónið: Þú verður að nenna ástinni

Sigga Kling skrifar
Elsku Ljónið mitt. Aldrei hefur nokkurn tíma verið sagt að það sé sérlega auðvelt að vera Ljón, en ég er alveg viss um að þótt þú fengir tilboð um að skipta um merki, þá myndir þú ekki gera það. Þið Ljónin eruð náttúrulega öll konungborin.

Þið þurfið jú bara að hrista makkann ykkar aðeins, sperra bringuna aðeins og þenja út brjóstkassann.Ég segi að þetta séu háu ljósin ykkar, og stærðin á háu ljósunum skiptir ekki máli. Þetta snýst bara um hvert ljósin eiga að skína.

Þú ert að vinna þig svo sterkt og fallega út úr tilfinningalegu amstri. Þú ert að finna þína sterkustu punkta og lætur veikleikana lönd og leið. Sjálfsöryggi er eitthvað sem kemur miklu sterkar fram hjá þér næstu tvo mánuði í það minnsta. Það gerir að verkum að fólk mun treysta þér fyrir svo miklu. Þú getur sigrast á öllu því sem fyrir þig verður lagt. En til þess að gera það, verðurðu bara að trúa því. Steinhættu að leita eftir einhverri viðurkenningu, sérstaklega frá þeim sem skipta engu máli. Þú getur ekki haldið frið við alla, né látið öllum finnast þú vera flottasta Ljón í heimi. Um leið og þú sérð þetta, þá sérðu líka hvað þú ert ríkt Ljón.

Á meðan á þessu tímabili stendur, skiptir sérlega miklu máli að þú hættir alveg að vera þrasgjarnt Ljón. Þrasgirnin er þinn Akkillesarhæll og getur komið þér í mikinn bobba. Það skiptir ekki neinu máli hver hefur í raun og veru rétt fyrir sér, meðan þú veist að þú hefur rétt fyrir þér, þá skaltu láta það duga. Það á eftir að koma þér mjög langt.

Ástarorkan er allt í kringum þig. En þú verður að nenna að vinna að ástinni, og láta hana skipta öllu máli, ef það er það sem að þér finnst vanta í líf þitt. Þú ert með svo mikinn yndisþokka, að þú myndir vekja stórkostlega athygli þótt þú værir í Crocs! Þú ert ekkert endilega með hefðbundna fegurð, heldur með þennan X-faktor sem skiptir öllu máli. Fólk á eftir að koma auga á hvað þú ert umhyggjusöm manneskja.

Þú átt eftir að finna ótrúlega marga hluti á þér, það er eins og þú sért með spádómsgáfu. Skrifaðu niður í símann þinn þær hugsanir sem þú vaknar með í kollinum, eða þær hugsanir sem þú fékkst á koddanum. Því þegar maður er alveg að sofna, þá fær maður merkilegustu skilaboðin, svona þegar þú ert hvorki vakandi, né alveg sofandi.

Dásamlegt tímabil hjá þér, elsku Ljón, næstu þrjá mánuði.




Nú er mál að tengja sig náttúrunni. Bara það að leggjast á jörðina mun breyta orku þinni ef þú nennir ekkert að labba neitt. Móðir jörð mun gefa þér frið og jarðtengja þig og það skiptir svo miklu máli. Af hverju heldur þú að hún sé annars kölluð móðir jörð? Að sjálfsögðu er hún móðir okkar allra. Og ekki gleyma að þó að þig hafi langað til að gráta, þá munu tárin hjálpa þér því þau eru sumarregn sálarinnar. Það er ekkert fallegra en tilfinningaríkt og einlægt Ljón. Og þetta sumar sem er í gangi, er sumar tilfinninganna. Lífið er yndislegt.

Fræg Ljón: Cara Delevingne fyrirsæta, Ágústa Eva Erlendsdóttir, leik- og söngkona, Halldóra Geirharðsdóttir leikkona, Birgitta Haukdal söngkona, Barack Obama Bandaríkjaforseti, Ásdís Rán fyrirsæta, Gísli Gíslason geimfari, Geir Ólafsson söngvari, Þórunn Antonía alheimsstjarna, Albert Eiríks, matgæðingur af bestu sort, Jón Óttar Ragnarsson, athafna- og fjölmiðlamaður, Jennifer Lopez söngkona, Diddú, Sirrý Arnardóttir fjölmiðlakona, Arnór Dan, söngvari Agent Fresco.


Tengdar fréttir

Júlíspá Siggu Kling - Fiskur: Hamingjan bankar á dyrnar

Elsku fallegi seiðandi Fiskurinn minn. Hversu dásamlegt á þetta sumar eftir að verða? Það eina sem getur að einhverju leyti truflað þig eða snúið þig niður er annað fólk sem þú ert að stressa þig á, en hefur enga ástæðu til.

Júlíspá Siggu Kling - Tvíburinn: Þitt besta sumar í lengri tíma

Elsku Tvíburinn minn. Ekki hefur verið lognmollunni fyrir að fara í kringum þig. Fólk reynir hvað það getur að hafa stjórn á þér en þú átt bara ekki að leyfa því það. Það getur enginn breytt líðan þinni nema þú gefir samþykki. Passaðu þig á þessu.

Júlíspá Siggu Kling - Vatnsberinn: Slúður er rödd andskotans

Hjartans Vatnsberi. Þú ert að fara inn í merkilegan tíma. Þú ert að fara inn í tíma heiðarleika. Þú ert að fara inn í tíma þar sem að sannleikurinn skiptir ofsalega miklu máli, þú átt eftir að heyra hver sannleikurinn er í hlutum sem þig óraði ekki fyrir.

Júlíspá Siggu Kling komin á Vísi!

Stjörnuspár Sigríðar Klingenberg spámiðils njóta gríðarlega vinsælda undanfarin ár. Mánaðarlega spáir hún fyrir lesendum Vísis og Fréttablaðsins, í formi texta og myndbands, en spár hennar fyrir júnímánuð má sjá hér fyrir neðan.

Júlíspá Siggu Kling - Krabbinn: Greddan ræður ríkjum

Elsku Krabbinn minn. Það er svo rosalega mikill Venus í kringum þig í sumar. Þú elskar og verður elskaður. Þú verður svo spenntur fyrir svo dæmalaust mörgu að þú veist varla hvert þú átt að stefna. Það er samt allt í lagi.

Júlíspá Siggu Kling - Vog: Hættu þessu tuði

Elsku hjartans Vogin mín. Ekki hafa samviskubit yfir neinu, ekkert bit er sárara einmitt en það. Þú pælir svo mikið í að þú eigir nú að vera búin með þetta, og þú þurfir að klára hitt og vera til staðar þarna, að þú getir fengið svo mikið samviskubit af þessu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×