Lífið

Júlíspá Siggu Kling - Bogmaður: Nýttu þér heppnina þína

Sigga Kling skrifar
Besti, besti bogmaður. Þú hefur svo sterkan kjarna og þú veist alltaf hvað þú ætlar að gera. Þú þarft að gera allt svo vel að maður öfundar þig stundum. Happdrætti Háskóla Íslands sagði að bogmaðurinn og vogin væru heppnustu merkin, miðað við þá sem hafa fengið þar vinninga. Þessu trúi ég. Þú átt að nýta þér að það er yfir þér sérstök heppni.

Þú þarft að vera mjög ákveðinn í því hvernig þú vilt hafa hlutina. Þetta verður mjög spennuríkt sumar, margt að gerast og þú verður úti um allt. Þú átt eftir að elska þetta. Þú munt ganga frá þínu gagnvart vinum og fjölskyldu og þú munt hugsa húrra! Því þú bjóst ekki við því í fyrra að það myndi ganga svona vel. 2015 verður árið sem þú, elskan mín, segir: Þetta var árið mitt. Auðvitað hefurðu verið þreyttur á köflum og pirraður, en það er alveg eðlilegt.

Ef þú ert í stuði fyrir ástina, þá er ástin alls staðar, bara bentu. Ef ekki, þá þarftu að segja það skýrt að þú viljir fá að vera í friði. Þú munt alltaf ná í þann sem þú ert að eltast við. Ef þú nennir í eltingaleik þá þarftu bara að klukka.

Líkami þinn, elskan mín, endurspeglar alltaf hvernig þér líður svo vertu bara sáttur við það sem þú hefur eða gerðu eitthvað í því, þú ræður því. Þetta er allavega tími gamansins. Júpíter er svo sannarlega að skrifa eina skemmtilegustu ævisögu sem til er fyrir þig. Þú ert að byrja á nýjum kafla og settu þig í aðalhlutverkið þar. Allavega ætlar Júpíter að standa þér við hlið.

Mottó: Júpíter setur kraft í orðin, fyrir framan mig er hamingjuforðinn.



Frægir bogmenn: Ingvar E. Sigurðsson leikari, Björgvin Franz Gíslason leikari, Edda Heiðrún Backman leikkona, Regína Ósk Óskarsdóttir söngkona, Sigrún í Gyðja Collecton, Steindi, Bryndís Ásmundsdóttir leik- og sngkona, Jóhanna Vilhjálmsdóttir fjallkona og leikkona.

 


Tengdar fréttir

Júlíspá Siggu Kling - Ljón: Margt á döfinni hjá þér

Elsku einstaka ljón. Það væri líklega ekkert að gerast ef þú dveldir ekki á móður jörð. Að sjálfsögðu eru tilfinningarnar búnar að vera þandar eins og flottasta fiðlan í sinfóníunni. Þú hefur verið lítið í þér en einnig stórhuga og haft tröllatrú á öllu.

Júlíspá Siggu Kling - Fiskur: Ekki láta streituna yfirbuga þig

Elsku meðvirki fiskur. Ég hef stúderað þig lengi og meðvirkasta fólk í heimi er í þínu merki. Þú ert alltof góður, gefur alltof mikið og svo getur þú orðið innanpirraður. Það er allt í lagi að láta fjúka í sig, vera leiður og fara stundum í fýlu. Þú getur ekki alltaf verið uppistandarinn í partýinu.

Júlíspá Siggu Kling - Tvíburi: Slepptu örygginu um stund

Elsku fallegi tvíburi. Það virðist margt hafa verið að gerast hjá þér. Þú vilt breytingar í líf þitt og það eru mörg tákn búin að vera uppi síðustu tvo mánuði sem sýna þér að það gætu mjög góðir hlutir verið á leið inn í líf þitt.

Júlíspá Siggu Kling - Vog: Með friðinn að leiðarljósi

Varkára en samt öfluga vogin mín. Þú skalt vera þakklát fyrir alla þá heppni sem er að koma til þín og leysir upp leiðindi, ef þér finnst þau hafa verið hjá þér. Þú munt hægt en örugglega sjá að þú ert að gera rétt. Þú átt eftir að gera mjög gott samkomulag við einhvern náinn þér og þér á eftir að líða miklu betur með það.

Júlíspá Siggu Kling - Sporðdreki: Vanilla gerir þér gott

Elsku fagri sporðdrekinn minn. Þú ert gæddur svo góðri eftirtekt að það virðist ekkert fram hjá þér fara. Þú hefur svo mikinn áhuga á fólki og það er eins og þú vitir hvað er að fara að gerast hjá sumum. Þú þarft að efla þennan kraft hjá þér og muna að fyrsta hugsunin er sú rétta.

Júlíspá Siggu Kling - Meyjan: Tímabil sameiningar

Elsku þrautgóða meyjan mín. Þetta er tímabil sameiningar. Þú munt ákveða að gifta þig eða ert jafnvel nýbúin að því. Það byrja ný sambönd hjá mörgum meyjunum og þú ert sko tilbúin að ganga inn í ljósið, en þú þarft bara að draga frá gardínurnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×