Sport

Júlían Evrópumeistari

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Júlían J.K. Jóhannsson stóð sig frábærlega á Málaga.
Júlían J.K. Jóhannsson stóð sig frábærlega á Málaga. vísir/valli
Júlían J.K. Jóhannsson varð í dag Evrópumeistari unglinga í kraftlyftingum 23 ára og yngri í +120kg flokki á Evrópumótinu sem kláraðist á Málaga á Spáni í dag.

Júlían lyfti samtals 1.050 kg en hann tók mest 395 kg í hnébeygju sem er nýtt Íslandsmet unglinga, 290 kg í bekkpressu sem er Íslandsmet í opnum flokki og 365 kg í réttstöðulyftu sem er íslandsmet í opnum flokki.

Þetta kemur fram á heimasíðu Kraftlyftingasambands Íslands. Samanlagður árangur Júlíans er jöfnun á Íslandsmetinu í opnum flokki.

Júlían varð einnig stigahæsti unglingurinn á móti en hann fékk í heildina 577,1 Wilkstig fyrir frammistöðu sína.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×