Íslenski boltinn

Jörundur hættur hjá Fylki

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jörundur er hættur þjálfun Fylkis í Pepsi-deild kvenna.
Jörundur er hættur þjálfun Fylkis í Pepsi-deild kvenna. vísir/anton
Jörundur Áki Sveinsson er hættur sem þjálfari Fylkis. Þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net í kvöld.

Jörundur tók við Fylki fyrir tímabilið en Árbæingar enduðu í 6. sæti Pepsi-deildar kvenna í sumar og komst í undanúrslit Borgunarbikarsins þar sem liðið tapaði fyrir Stjörnunni.

Þar á undan stýrði Jörundur karlaliði BÍ/Bolungarvíkur í 1. deild og var nálægt því að koma liðinu upp í Pepsi-deildina 2013.

Hann hefur einnig stýrt kvennaliðum Breiðabliks og Stjörnunnar og þá var hann þjálfari kvennalandsliðsins um tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×