Leikjavísir

Jordan strigaskór með HDMI-tengi

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Skórnir koma með HDMI-snúru.
Skórnir koma með HDMI-snúru.
Aðdáendur PlayStation 4 leikjatölvunnar geta nú keypt sérhannaða Jordan-strigaskó tileinkaða tölvunni. Jordan er dótturfyrirtæki Nike.

Athygli vekur að á skónum eru svokölluð HDMI-tengi, sem vísa til þess að PS4 leikjatölvan tengist sjónvörpum í gegnum slík tengi.

Tengin eru þó aðeins til skrauts. „Þessi tengi gera ekkert, annað en að vera svöl,“ segir Jonny Barry hönnuður. „Skórnir koma með sérhannaðri Jordan HDMI-snúru,“ bætir hann við.  Barry selur þessa sérhönnuðu skó í gegnum Instagram-vef sinn eða í gegnum tölvupóst. Skórnir kosta 950 bandaríkjadali, eða um 113 þúsund krónur.

Skórnir eru með Playstation og Playstation 4 merkinu.
Skórnir eru svartir eins og sjá má.
Hér má sjá skóna frá öðru sjónarhorni.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×