Golf

Jordan Spieth uppfyllti æskudrauminn og sigraði á Masters

Kári Örn Hinriksson skrifar
Spieth fagnar sigrinum á Augusta
Spieth fagnar sigrinum á Augusta Getty
Nafnið sem var á allra vörum fyrir lokahringinn á Masters sem leikinn var í kvöld var nafn Jordan Spieth en hann hafði unnið hug og hjörtu golfáhugamanna víða um veröld með stórkostlegri frammistöðu á fyrstu þremur hringjunum í þessu fyrsta risamóti ársins.

Spurningunni um hvort að pressan myndi ná til hans á lokahringnum var svarað strax á fyrstu þremur holunum sem hann lék á tveimur undir pari og náði með því að halda forskoti sínu á Justin Rose og Phil Mickelson í fjórum höggum.

Spieth var því kominn á 18 högg undir pari og hann hélt þeirri tölu allt til enda, sem dugði þessum 21 árs kylfingi til þess að uppfylla æskudraum sinn og sigra á sjálfu Masters mótinu. Hann er jafnframt næst yngsti kylfingur sögunnar til þess að sigra á Masters á eftir Tiger Woods.

Woods gerði ágætt mót á Augusta National í ár í endurkomu sinni á PGA-mótaröðina en hann endaði í 17. sæti á fimm höggum undir pari og sýndi oft á tíðum að stutta spilið hans hefur tekið miklum framförum á meðan að hann hefur verið í fríi frá keppnisgolfi.

Justin Rose og Phil Mickelson deildu öðru sætinu á 14 höggum undir pari en Rory McIlroy kom á eftir þeim í fjórða sæti á 12 höggum undir pari eftir frábæran lokahring.

Slær ekki langt en er eins og galdramaður í kring um flatirnar

Lykillinn að sigri Spieth var klárlega frammistaða hans á flötunum en enginn kylfingur púttaði jafn sjaldan og hann í mótinu. Þá er Spieth ekki einn af þeim högglengri á PGA-mótaröðinni en hann bætti upp fyrir það með hárnákvæmum innáhöggum trekk í trekk.

Spieth hefur sigrað á tveimur af síðustu fjórum atvinnumótum sem hann hefur tekið þátt í og endað í öðru sæti í hinum tveimur. Hann virðist því vera ótrúlegu formi þessa dagana, sem minnir óneytanlega á yfirburði Tiger Woods þegar að hann var upp á sitt besta fyrir rúmum áratug.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×