Golf

Jordan Spieth lítið að stressa sig yfir sínum fyrsta Ryder-bikar

Jordan Spieth í Masters mótinu fyrr á árinu.
Jordan Spieth í Masters mótinu fyrr á árinu. AP/Getty
Ein stærsta vonarstjarna bandarísks golfs, Jordan Spieth, segir að hann sé ekki stressaður fyrir Ryder-bikarnum sem hefst formlega á morgun en hann er í bandaríska liðinu í fyrsta sinn.

Þessi tvítugi strákur hefur vakið verðskuldaða athygli á PGA-mótaröðinni undanfarin tvö ár en hann sigraði á John Deere Classic í fyrra og var nálægt því að sigra á Masters mótinu í ár þar sem hann endaði í öðru sæti á eftir Bubba Watson.

Þetta er ekki allt alveg nýtt fyrir mér þótt að þetta sé minn fyrsti Ryder-bikar,“ sagði Spieth á fréttamannafundi í gær. „Ég var í bandaríska liðinu í Forsetabikarnum í fyrra og það er svipað fyrirkomulag. Auðvitað er Ryder-bikarinn stærri og það er meiri pressa en ég á eftir að höndla hana, ég hlakka til að standa á fyrsta teig þótt að hjartað eigi kannski eftir að slá hraðar en venjulega.

Fastlega er gert ráð fyrir að fyrirliði bandaríska liðsins, Tom Watson, pari Spieth með reynsluboltanum Matt Kuchar en þeir tveir hafa leikið saman æfingahringi undanfarna tvo daga. Kuchar tjáði sig um það á fréttamannafundinum í gær og segist sjálfur vera mjög spenntur fyrir því að leika með Spieth.

Hann er ungur en mjög þroskaður kylfingur sem sést kannski best á því hversu góður hann er á flötunum. Ég myndi fagna því ef ég fengi tækifæri til þess að spila með honum um helgina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×