Golf

Jordan Spieth leiðir á Masters fyrir lokadaginn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jordan Spieth er efstur fyrir lokadaginn.
Jordan Spieth er efstur fyrir lokadaginn. visir/getty
Jordan Spieth er í efsta sæti á Masters fyrir lokahringinn en hann lék ekkert sérstaklega vel í dag. Spieth hefur leikið fyrstu þrjá hringina á - 3 og leiðir mótið með einu höggi. 

Smylie Kaufman er í öðru sæti á -2 og Japaninn Hideki Matsuyama í því þriðja á -1. Það sama má segja um Þjóðverjann Bernhard Langer sem er einnig á -1. 

Írinn Rory Mcilroy lék með Spieth í holli í dag en hann lék á fimm höggum yfir pari á hringnum í dag og er samtals á tveimur höggum yfir pari. 

Jordan Spieth vann mótið í fyrra og getur hann varið titilinn á morgun. Það eru ekki margir golfarar sem hafa náð þeim árangri.

Mótið er í beinni útsendingu á Golfstöðinni og hefst útsendingin frá lokahringnum á morgun klukkan 18.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×