Golf

Jordan Spieth lætur pressuna ekki trufla sig

Spieth slær úr glompu á æfingahring á St. Andrews í gær.
Spieth slær úr glompu á æfingahring á St. Andrews í gær. Getty.
Þrátt fyrir að augu allra séu á Bandaríkjamanninum Jordan Spieth fyrir Opna breska meistaramótið sem hefst í fyrramálið þá segist þessi ungi kylfingur ekki vera stressaður fyrir morgundeginum.

Spieth hefur sigrað á báðum risamótum ársins hingað til, Masters og US Open, en hann sigraði einnig á John Deere Classic í síðust viku.

Ég mun ekki hugsa um sigrana sem ég hef náð á árinu þegar að ég tía upp á fyrsta hring á St. Andrews,“ sagði Spieth við fréttamenn eftir æfingahringinn í dag.

Að sjálfsögðu lætur maður sig dreyma um sigur en það sem mér finnst erfiðast er að leika þennan golfvöll, sagan hérna er svo mikil og goðsagnirnar svo margar að það eitt gerir mann stressaðan.“

Spieth hefur aðeins leikið St. Andrews fjórum sinnum áður í móti sem sumir telja að það muni vinna gegn honum á móti reyndari kylfingum um helgina.

Hann hefur leik ásamt Dustin Johnson og Hideki Matsuyama klukkan hálf níu í fyrramálið en bein útsending á Golfstöðinni hefst klukkan 08:00.

Rástíma allra keppenda má nálgast hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×