Golf

Jordan Spieth í vandræðum á fyrsta hring á Barclays

Kári Örn Hinriksson skrifar
Spieth var ekki samkvæmur sjálfum sér á fyrsta hring.
Spieth var ekki samkvæmur sjálfum sér á fyrsta hring. Vísir/Getty
Bubba Watson, Camilo Villegas, Spencer Levin og Tony Finau leiða eftir fyrsta hring á Barclays meistaramótinu sem hófst í gær. Léku þeir fyrsta hring mótsins á Plainfield vellinum á 65 höggum eða fimm undir pari.

Barclays mótið er það fyrsta í FedEx-bikarnum sem er nokkurskonar úrslitakeppni PGA-mótaraðarinnar þar sem bestu kylfingar heims leika um stjarnfræðilega háar peningaupphæðir.

Jordan Spieth sem nýlega komst á topp heimslistans byrjaði þó ekki vel en hann lék fyrsta hring á 74 höggum eða á fjórum yfir pari sem er hans versti hringur síðan í maí.

Ef Spieth nær ekki niðurskurðinum mun Rory McIlroy fara aftur á topp heimslistans í golfi en hann er ekki meðal keppenda í mótinu um helgina.

Það voru fleiri stór nöfn sem áttu í erfileikum á fyrsta hring en þar má nefna Justin Rose, Jimmy Walker og Ian Poulter sem lék á 78 höggum eða á átta yfir pari.

125 efstu kylfingar á stigalista PGA-mótaraðarinnar hafa þátttökurétt á Barclays mótinu en aðeins 100 efstu að því loknu fá að vera með á Deutsche Bank meistaramótinu sem hefst í næstu viku.

Lokamótið fer svo fram á East Lake vellinum í Atlanta í lok september en þar munu aðeins 30 stigahæstu kylfingarnir hafa þátttökurétt.

Það verður áhugaverð að sjá hvort að Spieth nær niðurskurðinum í kvöld og heldur efsta sætinu á heimslistanum en bein útsending frá Plainfield hefst á Golfstöðinni klukkan 18:00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×