Golf

Jordan Spieth: Vona að ég geti verið oftar í baráttunni um risatitil á sunnudegi

Spieth eftir innáhöggið á 14.holu á Augusta National í dag.
Spieth eftir innáhöggið á 14.holu á Augusta National í dag. AP/Vísir
Þrátt fyrir að Jordan Spieth hafi ekki sigrað Mastersmótið þetta árið þá vann þessi tvítugi kylfingur aðdáun margra golfáhugamanna með frammistöðu sinni um helgina. Spieth lék í lokahollinu ásamt Bubba Watson í dag og á tímabili leiddi hann mótið með tveimur höggum á lokahringnum.

Það forskot entist þó ekki lengi enda spilaði Watson frábært golf í dag og hafði að lokum þriggja högga sigur á þessu sögufræga móti. Í viðtali við fréttamenn eftir hringinn sagði Spieth að hann gæti tekið margt jákvætt úr mótinu þrátt fyrir að hann hafi tapað niður forskotinu á lokahringnum.

„Þegar öllu er á botninn hvolft þá var ég með þetta í eigin höndum en mér tókst ekki að klára þetta með stíl. Þar liggur eftirsjáin þessa stundina, ég gerði ekki nógu vel á seinni níu holunum. Ég get samt ekki neitað því að undanfarnir dagar hafa verið frábærir og ég vona að ég geti verið oftar í baráttunni um risatitil á sunnudegi, það er engu líkt.“

Sigurinn hjá Watson er hans annar á Mastersmótinu en hann sigraði það fyrst árið 2012. Í kjölfarið tók við frekar erfiður kafli hjá Watson en hann féll niður heimslistann í golfi og peningalista PGA-mótaraðarinnar eftir því sem leið á tímabilið. Undanfarnir mánuðir hafa þó verið gæfuríkari hjá þessum litríka kylfingi en hann sigraði meðal annars Northern Trust mótið á PGA-mótaröðinni sem fram fór í febrúar og núna klæðist hann græna jakkanum á ný eftir tveggja ára bið.

„Mér fannst mun erfiðara að vinna þetta Mastersmót en það síðasta,“ sagði Watson klökkur við fréttamenn eftir sigurinn í kvöld. „Síðast þá fannst mér ég vera frekar heppinn, en þessi sigur er engin heppni heldur afrakstur mikillar vinnu sem farið hefur í að bæta golfið mitt á undanförnum mánuðum. Að vinna Mastersmótið hefur verið draumur hjá mér síðan ég hef verið barn og núna hef ég unnið það tvisvar.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×