Lífið

Jordan í vandræðum með að tjá sig eftir eldheita kjúklingavængi

Leikarinn Michael B. Jordan mætti í nýjasta þáttinn af First We Feast þar sem gestir eru manaðir til að borða sterka kjúklingavængi.

Þáttastjórnandinn og gesturinn ræða saman en á sama tíma borða þau vel sterkan vængi og þurfa að svara nokkuð erfiðum spurningum á sama tíma.

Sósurnar verða alltaf sterkari og sterkari og var Jordan í stökustu vandræðum með að tjá sig undir lokin.

Jordan fer með eitt af aðalhlutverkunum í kvikmyndinni Black Panter sem er í kvikmyndahúsum um heim allan um þessar mundir. Hér að neðan má sjá hvernig til tókst.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×