Bíó og sjónvarp

Jónsi og Alex semja lög fyrir nýjustu mynd Cameron Crowe

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Jónsi og Alex
Jónsi og Alex vísir/gva
Tvö áður óheyrð lög eftir Jón Þór Birgisson og Alex Somes munu heyrast í kvikmynd Cameron Crowe, Aloha. Lögin tvö heita Midnight Mix og Shooting Stars. Meðal annara listamanna sem munu eiga lög í myndinni má nefna Fleetwood Mac, Kurt Vile, Beck, Tallest Man On Earth og Daryl Hall & John Oates. Þetta kemur fram á Film Music Reporter.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem dúóið semur tónlist fyrir sjónvarpsefni en í fyrra sömdu þeir tónlist fyrir þættina Manhattan og árið 2011 samdi Jónsi tónlistina í myndinni We Bought A Zoo.

Aloha verður frumsýnd í lok maí í Bandaríkjunum en líkt og áður segir leikstýrir Cameron Crowe myndinni auk þess að skrifa handritið. Með aðalhlutverk í myndinni fara Bradley Cooper, Emma Stone og Rachel McAdams. Að auki má sjá Bill Murray, John Krasinski og Alec Baldwin í smærri hlutverkum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×