Sport

Jones bað Pútin um rússneskan ríkisborgararétt

Það fór vel á með Jones og Pútin.
Það fór vel á með Jones og Pútin. vísir/epa
Bandaríkjamaðurinn Roy Jones Jr., fyrrum heimsmeistari í hnefaleikjum, vill verða Rússi.

Það eru tvö ár síðan Jones viðraði þessar hugmyndir sínar en hann fékk tækifæri á dögunum til þess að fara með þetta alla leið.

Þá hitti hann forseta Rússlands, Vladimir Pútin, og drukku þeir te saman á fundi. Þá bað Jones forsetann um ríkisborgararétt.

Pútin sagði að það væri lítið mál að redda því ef Jones ætlaði sér að eyða drjúgum tíma í landinu.

Jones mun taka þátt í mikilli sýningu í Rússlandi um næstu helgi en hann er farinn að rappa eftir að hann hætti í boxinu.

Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×