Innlent

Jón Steinar segir að Markús þurfi að segja af sér

Nadine Guðrún Yaghi skrifar
Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæstaréttardómari.
Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæstaréttardómari. vísir/gva
„Markús á að segja af sér sem hæstaréttardómari,“ segir Jón Steinar Gunnlaugsson, hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi dómari við Hæstarétt.

Hann er afar gagnrýninn á Markús Sigurbjörnsson hæstaréttardómara og þá staðreynd að hann hafi dæmt í málum sem Jón Steinar telur að Markús hafi verið vanhæfur til að dæma í. 

Þrátt fyrir að hafa bæði hagnast og tapað á hlutabréfaviðskiptum og fjárfestingum hefur Markús ekki vikið sæti vegna vanhæfis, í málum sem bankinn eða fyrirsvarsmenn hans eru aðilar að.

„Það er enginn vafi á því að hann átti að víkja sæti í þessum málum sökum vanhæfis. Bæði fyrir hrun þegar hann er hluthafi í bankanum og eftir hrun þegar hann er að dæma í sakamálunum á hendur fyrirsvarsmönnum bankanna vegna bankahrunsins,“ segir Jón Steinar.

Í yfirlýsingu sem Markús sendi frá sér í gær kemur fram að hann hafi leitað leyfis nefndar um dómarastörf eftir að hann eignaðist bréfin fyrst. Eftir það hafi hann tvisvar tilkynnt nefndinni um sölu bréfa sinna í Glitni. Markús tilkynnti hins vegar ekki um það þegar hann fór með 60 milljónir í eignastýringu en hann hefur sagt að honum hafi ekki borið að tilkynna það.

„Markús hefur reynt að kasta ryki í augu almennings með því að beina sjónum að þessum tilkynningum. Þetta gerir hann til að leiða umræðuna frá spurningunni um vanhæfi,“ segir Jón Steinar.

Markús fékk aldrei formlegt samþykki fyrir hlutafjáreign sinni í Glitni. Gunnlaugur Claessen, sem var formaður nefndarinnar þegar Markús átti hlutabréfin, segir að ef engin sérstök viðbrögð hafi komið frá nefndinni hafi mátt ganga út frá því með réttu að ekki væru gerðar athugasemdir.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu


Tengdar fréttir

Ein tilkynning Markúsar fannst við leit í gærkvöldi

Greint var frá því í fréttum í gær að Markús Sigurbjörnsson, forseti Hæstaréttar, hafi innleyst á annan tug milljóna úr sjóði 9 hjá Glitni á síðustu viðskiptadögum fyrir hrun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×