Viðskipti innlent

Jón Sigurðsson býður sig fram að nýju

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Jón Sigurðsson gefur kost á sér til setu í stjórn N1.
Jón Sigurðsson gefur kost á sér til setu í stjórn N1. vísir/daníel
Jón Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri FL Group, gefur kost á sér í stjórn N1 á hluthafafundi sem fram fer á miðvikudaginn. Jón gaf kost á sér til setu í stjórninni fyrir aðalfund.

Kauphöllin taldi vafa leika á hæfi Jóns til setu í stjórn félaga með skráða fjármálagerninga og dró hann því framboð sitt til baka fyrir síðasta aðalfund félagsins.

Í bréfi til stjórnarformanns vegna framboðsins nú segir Jón að Kauphöllin hafi nú staðfest við mig að hún muni ekki gera athugasemdir við framboð mitt eða setu í stjórn félaga með skráða fjármálagerninga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×