Lífið

Jón Jónsson að rifta samningi við Sony

Samúel Karl Ólason skrifar
„Fyrir tveimur árum var ég einhversstaðar að skrifa undir einhvern Sony samning. Svo nokkrum vikum seinna: Við eigum von á barni,“ sagði Jón Jónsson við Loga Bergmann í Loga í beinni í kvöld. „Þetta hefur breyst mikið á mjög jákvæðan hátt og maður er ekki lengur að setja sjálfan sig í fyrsta sæti.“

Hann sagði að honum þætti gaman að svara spurningum um samninginn og heimsfrægðina núna. Áður hefði hann aldrei vitað neitt hver staðan væri.

„Útaf því að það var ekkert að frétta ákváðum við í sumar að byrja að vinna í því að slútta þessu. Til þess að geta gefið út plötu á Íslandi. Það er svona 98 prósent komið. Ég á bara eftir að kvitta á slúttið og þá er ég laus allra mála og er bara Johnny J á Íslandi í góðum fíling.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×