Viðskipti innlent

Jón Heiðar til liðs við Birtingarhúsið

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Jón Heiðar Gunnarsson.
Jón Heiðar Gunnarsson.
Jón Heiðar Gunnarsson er nýr liðsmaður í stækkandi hópi Birtingahússins á sviði birtinga- og markaðsráðgjafar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Jón Heiðar er með meistaragráðu í blaða- og fréttamennsku frá Háskóla Íslands og B.A. gráðu í heimspeki og atvinnulífsfræði frá sama skóla. Hann hefur undanfarin ár starfað sem blaðamaður á Morgunblaðinu og vann áður sem verkefnastjóri hjá Hinu Húsinu og íþróttafréttamaður á RÚV.

Auk þess var hann atvinnumaður í handbolta í Frakklandi, en Jón Heiðar spilar nú handbolta með Í.R. í efstu deild.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×