Fótbolti

Jón Guðni bestur en Guðjón skoraði

Guðjón Baldvinsson.
Guðjón Baldvinsson.
Guðjón Baldvinsson var hetja Halmstad í kvöld er hann skoraði jöfnunarmark liðsins í fyrri leiknum gegn Sundsvall um sæti í sænsku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.

Daniel Sliper kom Sundsvall yfir á 2. mínútu en Guðjón jafnaði á þeirri 57. og þar við sat.

Bæði Guðjón og Kristinn Steindórsson voru í byrjunarliði Halmstad í kvöld.

Jón Guðni Fjóluson var í byrjunarliði Sundsvall. Hann átti stórleik og var valinn maður leiksins. Rúnar Már Sigurjónsson sat á bekknum allan tímann hjá Sundsvall.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×