Fótbolti

Jón Guðni: Alltaf gaman að spila á móti svona góðri þjóð

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jón Guðni brattur fyrir leikinn.
Jón Guðni brattur fyrir leikinn.
„Ég er svona yfirhöfuð sáttur við leik okkar gegn Kína. Við byrjuðum ágætlega en svo kannski misstum við kannski má stjórn á leiknum þegar við hleyptum þeim í takt viðleikinn,“ segir Jón Guðni Fjóluson, landsliðsmaður íslenska landsliðins í knattspyrnu, sem leikur gegn Síle í úrslitaleik Kínabikarsins út í Kína í fyrramálið.

„Undirbúningurinn hefur verið mjög fínn og það er ekki við neinu að kvarta hingað til hér út í Kína. Við höfum bara verið að fara í gegnum andstæðingin og fara yfir það hvað við ætlum okkur að gera á morgun“

Jón segir að leikurinn við Síle verðir flottur og skemmtilegur.

„Það er alltaf gaman að spila á móti svona þjóð sem er jafn ofarlega á heimslistanum og hún er. Liðið er númer fjögur á heimslistanum og gríðarlega vel spilandi. Þetta verður hörkuleikur og ég er bara mjög spenntur.“

Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport HD og hefst hann klukkan 7:30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×